Elaeagnus angustifolia

Ættkvísl
Elaeagnus
Nafn
angustifolia
Íslenskt nafn
Roðasiflurblað
Ætt
Silfurblaðsætt (Elaeagnaceae).
Samheiti
E. argentea. non Pursh. E. hortensis.
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Júní
Hæð
2-3 m (-7 m)
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Runni eða tré allt að 7 m hátt í heimkynnum sínum og álíka breitt. Krónan óregluleg eða egglaga með útstæðar greinar, gisin. Börkur dökk grábrúnn, smágreinar rauðleitar, þaktar silfurlitu hreistri, stundum með þyrna.
Lýsing
Lauf 4,5-9 × 1,2-2,5 sm, stakstæð, heilrend, mjó-egglaga til lensulaga, dökkgræn ofan, þakin silfurlitu hreistri neðan. Blómin 1-3 í blaðöxlum, ilmandi, bikar allt að 1 sm, trektlaga, gulur innan, að utan eru silfurlitir flipar jafnlangir trektinni. Blómin eru tvíkynja (eru bæði með karl- og kvenlíffæri) og eru frævuð af flugum. Aldin 1 sm, aflöng, egglaga, gulbrún, þakin silfurhreistri.
Uppruni
V Asía.
Harka
2
Heimildir
= 1, http://edis.ifas.ufl.edu, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, haustgræðlingar, rótargræðlingar. Fræ sem hefur verið geymt getur verið mjög lengi að spíra, það tekur oft meira en 18 mánuði. Hitameðferð í 4 vikur og 12 vikur í kulda á eftir getur hjálpað.
Notkun/nytjar
Í limgerði, við bílastæði, til uppgræðslu, í þyrpingar, sem stakstæðir runnar, í steinhæðir, í beðjarðra. Tegundin er með rótargerla sem vinna nítur úr andrúmsloftinu, hún þolir saltúða frá hafi. Plantan þolir klippingu mjög vel, myndar mikið af nýjum sprotum þegar hún er klippt alveg niður. Lækningaplanta.
Reynsla
Er ekki í ræktun í Lystigarðinum (2013). Var sáð 2013. Skríður ekki, þekkist á því frá silfurblaði ásamt því að greinar eru silfurlitar og þyrnóttar og berin æt (silfurblað með brúnar greinar og þurr, mélug ber).