Elaeagnus multiflora

Ættkvísl
Elaeagnus
Nafn
multiflora
Íslenskt nafn
Kínasilfurblað
Ætt
Silfurblaðsætt (Elaeagnaceae).
Samheiti
E. longipes.
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól eða dálítill skuggi
Blómalitur
Föl gulhvítur
Blómgunartími
Vor
Hæð
1-2 m (-3 m)
Vaxtarhraði
Meðal
Vaxtarlag
Runni allt að 3 m hár. Ungar greinar þaktar rauðbrúni hreistri.
Lýsing
Lauf 3-10 sm, egglaga, egglaga-aflöng, til oddbaugótt, djúpgræn á efra borði og verða hárlaus, en silfurlit með mörg brún hreistur á neðra borði. Blóm allt að 1,5 sm, stök eða tvö og tvö saman, ilmandi. Tvíkynja (eru með bæði karlkyns og kvenkyns lífæri) og eru frævaðar af býflugum. Aldin dökkrauð til brún, æt, á grönnum, allt að 3 sm löngum leggjum.
Uppruni
A Asía (Kína & Japan)
Sjúkdómar
Viðnámsþróttur gegn hunangssvepp.
Harka
6
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, haust-vetrargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í limgerði. Mjög þurrk og vindþolinn. Þolir loftmengun. Mjög breytileg tegund er oft ræktuð vegna ætra aldina í Japan, til eru nokkur afbrigði með nafni. Plöntur geta borið aldin 4 árum eftir að græðlingarnir hafa verið teknir.Notuð til matar, aldin hrá eða soðin. Fullþroskuð eru þau með gott súrt bragð, eru mjög góð í ábætisrétti. Þótt þau séu oftast notuð í bökur, niðursoðin o.fl. Fræ hrá eða soðin er hægt að borða með aldininu þótt fræið sé dálítið trefjótt.Aldin margra tegunda af þessari ættkvísl innihalda mikið af vítamínum og steinefnum, einkum vítamínunum A, C og E, flavoidum og öðrum lífvirkum sameindum. Aldinið er líka með talsvert lífsnauðsynlegum fitusýrum, sem er fremur óvenjulegt fyrir aldin. Það er verið að rannsaka þau sem fæði sem mögulega fækkar krabbameinstilfelli og líka til að stöðva eða snúa til baka vexti krabbameina.
Reynsla
Engin planta er í Lystigarðinum (2013) en var sáð 2012.