Elmera racemosa

Ættkvísl
Elmera
Nafn
racemosa
Íslenskt nafn
Urðahúfa
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulhvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
15 - 25 sm
Vaxtarlag
Eina tegundin í ættkvíslinni. Dúnhærður, lágvaxinn fjölæringur með granna, lárétta jarðstöngla, allt að 25 sm hár.
Lýsing
Grunnlauf um það bil 2 x 3-5 sm, nýrlaga,flipar bogadregnir, tenntir, dálítið hærðir, laufleggir allt að 7 sm, kirtilhærðir með stór, himnukennd eyranblöð, 1-4 lauf, stakstæð á blómstilkunum, minni en grunnlaufin. Blómin tvíkynja, 10-30 í allt að 25 sm löngum klasa. Bikarblöð 5, þríhyrnd, bein, grængul, um það bil 4 mm. Krónublöð 5, lítil, upprétt, djúp 3-5 skipt, gulhvít, 4-6 mm, jafn löng og bikarblöðin. Fræflar 5, styttri en bikarblöðin. Stílar 2 stuttir, sverir. Eggleg með 1 hólf, með 2 stutta stíla. Frævur 2. Aldin hýði, fræmörg.
Uppruni
NV N-Ameríka.
Harka
5
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, sem þekjujurt, í steinhæð, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta sem hefur þrifist mjög vel norðanlands. Á það til að sá sér út, eða réttara sagt skríður dálítið, því er æskilegt að fjarlægja blómstöngla fljótlega eftir blómgun.