Empetrum nigrum

Ættkvísl
Empetrum
Nafn
nigrum
Íslenskt nafn
Krækilyng
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauð-dökkrauð.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Sígrænn runni allt að 30 sm hár, oftast lægri. Greinar jarðlægar, samflæktar, smágreinar kirtilhærðar í fyrstu.
Lýsing
Laufin allt að 4 mm, bandlaga-aflöng, snubbótt, þykk, jarðrar afturorpnir svo mjög að blöðin verða hol að innan, stilkstutt eða nær stilklaus, grængljáandi á efra borði en með áberandi ljósri miðrák (rönd) á neðra borði.Blómin lítil, legglaus, í blaðöxlum, tvíbýli eða margbýli. Bikarblöð kringluleit, íhvolf, bleik, frjóþræðir langir, frjóhnappar rauðir, frævan víkkar út, flipótt, minnir næstum á krónublað í kvenkyns blómum. Krónublöðin hárauð eða dökkrauð. Aldin/ber til 0,75 sm, aflöng-hnöttótt, glansandi-svört steinaldin.
Uppruni
Norðurhvel, Evrasía, N Ameríka, Ísland
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Steinhæðir, náttúrulegir garðar, í beð, sem þekjuplanta.
Reynsla
Harðgerð planta sem er algeng um allt land.
Yrki og undirteg.
Empetrum nigrum ssp. nigrum L. - krækilyng - öll blómin einkynja Empetrum nigrum ssp. hermaphroditum (Hagerup) Bøcher með flest blómin tvíkynja og hefur verið nefnt krummalyng til aðgreiningar frá krækilynginu.