Erica tetralix

Ættkvísl
Erica
Nafn
tetralix
Íslenskt nafn
Haustlyng
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Lítill sígrænn runni
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi)
Blómalitur
Fölbleikur
Blómgunartími
Síðsumars
Hæð
0,15-0,25 m
Vaxtarlag
Fínlegur sígrænn dvergrunni með útafliggjandi, uppsveigðar fremur veikburða greinar, árssprotar smádúnhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 6 mm, 4 saman í kransi, lensulaga til bandlaga-aflöng, jaðrar randhærðir. Blómskipunin endastæð, smásveipur. Bikar allt að 3 mm, langhrokkinhærður. Króna allt að 9 mm löng, fölbleik, flipótt, fliparnir útstæðir eða innundnir.
Uppruni
Portúgal, Spánn, Frakkland, Bretland.
Harka
3
Heimildir
= 1; http://www.backyardgardener.com; http://www.heathsandheathers.com
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
í beð með súrum jarðvegi, í ker og í kassa.
Reynsla
Plöntunum var sáð í Lystigarðinum 1986, en flestar 1991 og þær voru gróðursettar í beð 2001. Yfirleitt ekkert kal gegnum árin, blómstrar árlega.
Yrki og undirteg.
Yfir 30 yrki í ræktun erlendis og af þeim eru t.d. 'Con Underwood' 20 sm, grágrænt lauf og 'Dee' í uppeldi í garðinum ekki lengur í Lystigarðinum 2014.