Erigeron aurantiacus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
aurantiacus
Íslenskt nafn
Gullkobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dökkgulrauður, rauðgulur hvirfill.
Blómgunartími
Júlí-ágúst (september).
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Langlífur fjölæringur. Blómstönglar uppsveigðir, allt að 30 sm háir, hærðir. Myndar breiðu, stönglar blöðóttir, greinóttir ofan til.
Lýsing
Blöðin eru gljáandi, grunnlauf egglaga til spaðalaga, ± stilkuð , oftast dálítið hærð við jaðrana og niður við grunninn. Stöngullauf fá, minni en hin, lensulaga. Körfur 1-4 saman, stórar (allt að 5 sm í þvermál). Tungukrónur fjölmargar, appelsínugular-dökkrauðgular, u.þ.b. 1,5 mm breiðar. Hvirfill gulur. Svifkrónur einfaldar. Blómgast frá lokum júlí og oft fram í september.
Uppruni
Fjöll í Túrkestan
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í breiður, í fjölæringabeð, til afskurðar.
Reynsla
Harðgerð og ljómandi falleg steinhæðarplanta. Hefur reynst vel í garðinum og er töluvert ræktuð. Langur blómgunartími.