Erigeron karvinskianus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
karvinskianus
Íslenskt nafn
Hellukobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
E. mucronatus de Candolle
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur-fölpurpura/gulur hvirfill.
Blómgunartími
Sumar-haust.
Hæð
20-50 sm
Vaxtarlag
Stönglar jarðlægir eða uppsveigðir, trékenndir neðan til, verður allt að 50 sm á hæð, lítið eitt dúnhærður.
Lýsing
Grunnlauf öfugegglaga til öfuglensulaga, venjulega er hvert og eitt með stóra tönn eða flipa á hvorri hlið, ögn dúnhærð, stutt, oft með laufóttar hliðargreinar. Körfur í strjálblóma sveip, allt að 2 sm í þvermál, reifablöð hárlaus eða lítið eitt hærð. Tungublóm hvít eða föl blápurpura ofan, bleik eða purpura neðan, 5-8 × um 1 mm. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Mjög langur blómgunartími.
Uppruni
Mexikó til Panama, hefur nú breiðst úr annars staðar og flokkast víða undir illgresi.
Harka
H4
Heimildir
2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í hlaðna veggi, í stalla, í breiður.
Reynsla
Lítt reynd enn sem komið er. Í uppeldi 2005, ekki lengur til 2013.Stundum ruglað saman (í ræktun) við Vittadinia triloba de Candolle eða V. australis Richard. Ekta V. australis er frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi og er líklega ekki í ræktun. Það er fjölæringur með útafliggjandi stöngla, allt að 30 sm langa, lauf eru silkihærð eða langhrokkinhærð, heilrend eða 3-tennt. Körfurnar stakar, endastæðar, tungublómin hvít (European Garden Flora).