Erigeron multiradiatus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
multiradiatus
Íslenskt nafn
Geislakobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauðfjólublár/ hvirfill gulur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Langlífur fjölæringur. Blómstönglar allt að 40 sm háir, dúnhærðir eða hærðir, uppréttir eða skástæðir, blöðóttir.
Lýsing
Laufin mjúkhærð. Grunnlauf öfuglensulaga eða lensulaga, heilrend, gróftennt eða flipótt. Stöngullauf stilklaus, tennt eða ótennt.Blómkörfur eru beytilegar að stærð allt að 5 sm í þvermál, ein eða fleiri á stöngulendanum, körfureifar striklaga og oddmjóar, reifablöðin hærð. Tungukrýndu blómin fjölmörg, bleikpurpura, mjó, 1-1,8 sm á lengd. Svifkrans með stutt, rauð þornhár. Aldin lítið eitt hærð.
Uppruni
Pakistan, Himalaja í 2400-4500m hæð
Harka
6
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð, til afskurðar.
Reynsla
Harðgerð tegund og nokkuð algeng í görðum hérlendis, enda ljómandi falleg og auðræktuð.
Yrki og undirteg.
Sumar plöntur sem ganga undir þessu nafni í görðum eru þó að öllum líkindum blendingar.