Erigeron ochroleucus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
ochroleucus
Íslenskt nafn
Purpurakobbi*
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blár, purpura, hvítur/gulur hvirfill.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Fjölæringar allt að 40 sm hár. Blómstönglar gróf- eða stinnhærðir. Stólparót.
Lýsing
Grunnlauf allt að 12 × 0,5 sm, band- til band-öfuglensulaga, stinnhærð til ullhærð eða hálf hárlaus. Stöngullauf bandlaga. Körfur stakar eða fáar saman, blómstæði allt að 18 mm. Reifar allt að 8 mm, reifablöð ullhærð, misstór, oft purpuralit í oddinn. Tungukrýndu blómin fá til mörg, blá, purpura eða hvít. Svifkrans með innri röð úr þornhárum og sú ytri úr himnukenndum hárum.
Uppruni
VM N Ameríka til SV Kanada.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
Reynsla
Lítt reynd, í uppeldi 2005, lifir enn 2014.
Yrki og undirteg.
Erigeron ochroleucus v. scribneri (Canby ex Rydb.) Cronq. er allt að 10 sm hátt afbrigði, grunnlaufin allt að 6 x 0,3 sm. Reifablöð aðeins purpuramenguð. Z4, RHS.