Erigeron uniflorus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
uniflorus
Íslenskt nafn
Fjallakobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljóslillablár / gulur hvirfill
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
Um 15 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur sem verður allt að 15 sm, stönglar hærðir.
Lýsing
Grunnlauf allt að 5 × 0,1 sm, spaðalaga, snubbótt, lítið eitt dúnhærð, randhærð í fyrstu. Stöngullauf fá, minni en grunnlaufin og harla lítið randhærð. Karfa allt að 1,5 sm í þvermál, stök, neðri reifablöð dúnhærð, oddur lillalitur, stöku sinnum ögn baksveigður, tungublóm hvít til föl lilla.
Uppruni
Norðurheimskautasvæðið. Pólhverf og í fjöllum Evrasíu.
Harka
Z2
Heimildir
2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í ker, í kassa.
Reynsla
Mjög harðger en kannski ekki mjög auðræktuð á láglendi. Í íslenska beðinu og í uppeldi 2005 frá nokkrum stöðum.
Yrki og undirteg.
Erigeron uniflorus ssp. eriocephalus (Vald.) Cronq.Allt að 35 sm hár, grunnlauf öfuglensulaga, stöku sinnum spaðalaga. Körfur allt að 3 sm í þvermál, neðri reifablöð rauðpurpura.