Erigeron ursinus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
ursinus
Íslenskt nafn
Bjarnarkobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fjólublár / gulur hvirfill.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
Um 30 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur allt að 30 sm, stönglar stinnhærðir til loðnir, hárið aðlægt, pupuramengaðir neðan til.
Lýsing
Lauf hárlaus, stöku sinnum ögn loðin, grunnlauf allt að 12 × 1,1 sm, öfuglensulaga, ydd, sjaldan snubbótt eða bogadregin í oddinn, með legg, randhærð. Stöngullauf minni, bandlaga eða lensulaga. Karfan stök, blómbotn allt að 19 mm í þvermál. Reifar allt að 7 mm, reifablöð með kirtla eða límkennd, loðin til ullhærð, nærri jafnstór, græn, oddur baksveigður, purpura, tungublóm, allmörg eða fjölmörg, blá, stöku sinnum bleikpurpura. Innri röð á svifhárakransi er með þornhár, sú ytri er hreistur.
Uppruni
NV N-Ameríka.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
Reynsla
Harðgerð, hefur þroskað fræ af og til í Lystigarðinum.