Eryngium bourgatii

Ættkvísl
Eryngium
Nafn
bourgatii
Íslenskt nafn
Spánarsveipþyrnir
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fagurblár/silfurblár.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
40-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt 15-45 sm. Fallegar blaðhvirfingar, langir greinóttir blómstönglar.
Lýsing
Blöðin tvífjaðurskipt með hvítum æðum og rákum, þykkk og stíf og fliparnir enda í mjóum svolítið stingandi þyrnum. Blaðkan allt að 7 sm, nær kringlótt, jaðrar oft bognir innundir sig. Blöð leðurkennd, dökk græn með áberandi silfurlitar æðar. Blaðstilkar 2-4 sinnum lengri en blaðkan, vængjalausir. Blómin í hvelfdum kollum. Blómkollar allt að 7 í fagurbláum og silfurlitum blómskipunum, egg-kúlulaga, 1,5-2,5 sm breið. Reifablöð 10-15, löng hvítleit, allt að 5 sm breið, band-lensulaga, heilrend eða með 1-3 pör af þyrnitönnum. Smáreifablöð heilrend eða með 3 tennur. Bikartennur um það bil 3 mm. Krónublöð blá. Aldin með fáar himnuagnir.
Uppruni
Pyreneafjöll.
Harka
5, H2
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Græðlingar að hausti, rótargræðlingar, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð, í blómaengi.
Reynsla
Hefur lifað samfellt frá 1990 í B4. Hefur reynst harðgerður bæði norðanlands og sunnan (H.Sig.). Góð til afskurðar og í þurrblómaskreytingar, skipta sjaldan.
Yrki og undirteg.
Yrki t.d. 'Oxford Blue' með dökk silfurbláa blómkolla Eryngium bourgatii ssp. heldreichii(Boiss.) P.H. Davis. Plantan verður allt að 45 sm. Blóm höfuð 3-13, 12-15 mm í þvermáli, reifablöð 7-12, misstór, 2-4 sinnum lengri en blómhöfuðin, heilrend eða lítið eitt þyrnótt, smáreifablöð heilrend. Heimkynni: Líbanon og Miðjarðarhafssvæðið. Blómgast síðsumars.