Eryngium campestre

Ættkvísl
Eryngium
Nafn
campestre
Íslenskt nafn
Brekkusveipþyrnir
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur-grænn.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
50-70 sm
Vaxtarlag
Bláleit fjölær jurt, 50-70 sm há.
Lýsing
Grunnlauf 5-20 sm, langæ, útlínur þríhyrnd- egglaga, skipt í þrennt, flipar 2- fjaðurskiptir, með þyrna sem vita fram, leðurkennd. Blaðstilkar jafnlangir blöðkunni, vængjalausir. Efri laufin smærri, legglaus en blaðgrunnur lykur ögn um stöngulinn. Reifablöð 5-8 allt að 4,5 sm, bandlensulaga, heilrend eða með 1 eða 2 pör af þyrnum. Blómkollar allt að 1,5 sm í þvermál, blómin fjölmörg í klasalíkum skúf, egglaga. Smáreifablöð heilrend. Blóm hvít til græn. Bikartennur um það bil 2,5 mm, egglaga með týtu. Aldin, með þéttar himnuagnir. Blómgast síðsumars.
Uppruni
Evrópa til SV Asía
Harka
6, H4
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Sáning, græðlingar, rótargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
Reynsla
Lítt reynd enn sem komið er, en hefur nú lifað 2 ár í fjölæringabeði. (G01)