Erythronium montanum

Ættkvísl
Erythronium
Nafn
montanum
Íslenskt nafn
Snæskógarlilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær laukjurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur, appelsínugul við grunninn.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
15-30 sm
Vaxtarlag
Plantan er allt að 30 sm há eða hærri.
Lýsing
Lauf að 15 sm, egg-lensulaga. Blómin 1 eða allmörg, 38 mm, hvít, appelsínugul við grunninn að innan, blómhlífarblöð dálítið baksveigð. Fræflar hvítir, fræni djúpflipótt.
Uppruni
NV N Ameríka.
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í ágúst á um 10-15 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í blómaengi, í þyrpingar, sem undirgróður.
Reynsla
Lítt reynd en ætti að spjara sig vel hérlendis, skýla fyrsta árið, visnar niður eftir blómgun.