Erythronium oreganum

Ættkvísl
Erythronium
Nafn
oreganum
Íslenskt nafn
Roðaskógarlilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur, rjómalitur með gulan grunn.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
15-30 sm
Vaxtarlag
Laukar mjó-egglaga, 25-60 mm, myndar stundum legglausa hliðarlauka. Er frábrugðin hinni náskyldu brúnskógarlilju (E. californicum) að blómin eru með gula miðju.
Lýsing
Laufin 12-25 sm, laufin greinilega flikrótt, með óreglulegar brúnar að hvítar rákir, egglaga til breið-lensulaga, jaðrar bylgjóttir. Blómstilkur rauðleitur, 15-40 sm. Blómskipunin 1-3 blóma. Blómhlífarblöð hvít til rjómalit með gulan grunn á blómgunartímanum, verða stundum bleik með aldrinum, stundum með rauðar línur eða bönd, oddbaugótt til mjó egglaga, 25-40 mm, innri með lítil eyrnablöð við grunninn. Fræflar 12-25 mm, frjóþræðir hvítir, útflattir, ± lensulaga, 2-3 mm breiðir. Fræflar rjómalitir til gulir. Stíll hvítur, 12-18 mm, fræni með baksveigða flipa 3-6 mm. Fræhýði aflöng til mjó-öfugegglaga, 3-5 sm.
Uppruni
N Ameríka (Oregon - BC.)
Harka
5
Heimildir
= 1, www.efloras.org, Flora of North America
Fjölgun
Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í ágúst á um 10-15 sm dýpt.
Notkun/nytjar
Í blómaengi, í þyrpingar, sem undirgróður.
Reynsla
Lítt reynd en ætti að spjara sig vel hérlendis, skýla fyrsta árið, visnar niður eftir blómgun.