Euonymus hamiltonianus

Ættkvísl
Euonymus
Nafn
hamiltonianus
Ssp./var
s.str.
Íslenskt nafn
Rifjabeinviður
Ætt
Beinviðarætt (Celastraceae).
Samheiti
Euonymus hamiltonianus Wallich. ssp. sieboldianus (Bl.) Hara, E. hians. E. nikoensis. E. semiexsertus. E. sieboldianus. E. vidalii. E. yedoensis.
Lífsform
Lauffellandi runni - lítið tré.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur með rauða slikju.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
2-3 m (-4m)
Vaxtarlag
Runni eða lítið tré, allt að 4 m hár og álíka breiður, mjög líkur beinvið (E. europaeus) en með sívalar greinar, grænar þegar þær eru ungar, verða brúnrauðar.
Lýsing
Lauf aflöng-lensulaga, stutt-odddregin, seigari og þykkari, laufleggurinn stuttur. Blómin hvít með rauða slikju, frjóhnappar purpura. Blómin eru tvíkynja (eru bæði með karlkyns og kvenkyns líffæri) og eru frævuð af skordýrum. Aldin öfughjartalaga, 4-flipótt, bleik.
Uppruni
Himalaja til Japan.
Harka
4
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, rótargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæður runni, í þyrpingar, í blönduð beð. Þrífst í næstum hvaða jarðvegi sem er líka kalkríkum, er sérstaklega hentug á skuggsælum vaxtarstöðum, helst í vel framræstum, meðalþungum jarðvegi. Plantan er líklega eitruð. Þessi tegund er oft undir E. yedoensis.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1982, gróðursett í beð 1988. Mjög fallegur runni með fallega haustliti, hefur kalið lítið gegnum tíðina, er um 2,5 m hár og að minnsta kosti eins breiður.