Euonymus maackii

Ættkvísl
Euonymus
Nafn
maackii
Íslenskt nafn
Drekabeinviður*
Ætt
Beinviðarætt (Celastraceae).
Samheiti
Euonymus bungeanus Maximowicz; E. bungeanus v. latifolius Chen H. Wang; E. bungeanus v. mongolicus (Nakai) Kitagawa; E. bungeanus v. ovatus F. H. Chen & M. C. Wang; E. bungeanus f. pendulus Rehder; E. forbesii Hance; E. hamiltonianus Wallich v. semipersistens Rehder; E. maackii f. lanceolatus Rehder; E. maackii f. salicifolius T. Chen; E. maackii v. trichophyllus Y. B. Chang; E. micranthus Bunge; E. mongolicus Nakai; E. oukiakensis Pampanini.
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
3-6 m (-10 m)
Vaxtarlag
Runni eða lítið tré, geinar og smágreinar sívalar, sterklegar, grænar til ljósgrænar.
Lýsing
Laufleggur 1-2,5 mm, laufblaðkan þunn-leðurkennd til þykk-pappírskennd, egglaga, kringlótt-egglaga, oddbaugótt eða egglaga-lensulaga, 6-10,5 × 2-4 sm, grunnur mjókkar dálítið niður, jaðar bogtenntur, hvassydd eða langydd, stundum rófuydd. Slétt bæði ofan og neðan, hliðaæðastrengir í 6-8 pörum, bogna fram á við, mynda vef og hverfa áður en þær ná út í jaðarinn. Blómskipunin skúfur. Blómskipunarleggur 2-3,5 sm, 1-3 × tví-kvíslgreindur, með allmörg blóm, blómleggur 5-7 mm. Blómin 4-deild, 8-9 mm í þvermál, bikarblöð egglaga, krónublöð hvít, lensulaga eða lang-egglaga, langydd eða snubbótt. Hýði tígullaga með 4 horn og djúpar grópir. Mjókka að grunni, brún eða gulbrún til rauðbrún, um 9 mm. Fræin hálfhnöttótt, dökkbrún, að hluta til þakin appelsínugulri frækápu.
Uppruni
Kína, Japan, Kórea, Rússland, ræktuð í Evrópu og N-Ameríku..
Harka
4
Heimildir
= 1, http://www.efloras.org Flora of China, http://www.pfaf.org, http://en.hortipedia.com
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í jarðra, í limgerði.
Reynsla
Ekki í ræktun sem stendur en er á óskalista! Plantan þarf litla umhirðu. Runninn þolir allt að -35°C. Plantan líklega eitruð.
Yrki og undirteg.
Ein algengasta tegund ættkvíslarinnar, fjölmörg yrki í ræktun erlendis.