Euonymus sachalinensis

Ættkvísl
Euonymus
Nafn
sachalinensis
Íslenskt nafn
Eyjabeinviður
Ætt
Beinviðarætt (Celastraceae).
Samheiti
Euonymus latifolius v. planipes, E. latifolius v. sachalinensis, E. macropterus v. miniatus, E. miniatus, E. tricarpus.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Laxableikur-rauður.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
2-3 (-4) m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, 2-3 m eða allt að 4 m hár.
Lýsing
Lauf gagnstæð, heil, 2 sm, oddbaugótt-öfugegglaga, stutt-odddregin, fleyglaga við grunninn, bogtennt og sagtennt, laufleggur flatur, allt að 10 mm. Skúfur strjálblóma, lítill, fáblóma, blómskipunarleggur grannur, allt að 7 sm. Blóm 5-deild, purpura til dökkrauð. Blómin eru tvíkynja (eru bæði með karlkyns og kvenkyns líffæri) og eru frævuð af skordýrum. Græn fræhýði þroskast að haustinu. Aldin 5-hyrnd, allt að 18 mm í þvermál, fagurrauð til appelsínugul.
Uppruni
NA Asía (Japan, Kórea, Sakalín).
Harka
5
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org, http://en.hortipedia.com
Fjölgun
Sáning. sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1999 og gróðursettar í beð 2004 og ein planta sem sáð var til 2010, er í sólreit 2013.Þar að auki er til ein planta sem kom undir samnefninu E. planiceps og var gróðursett í beð 2005 sem hefur staðið sig mjög vel.Plantan er líklega eitruð.