Filipendula purpurea

Ættkvísl
Filipendula
Nafn
purpurea
Íslenskt nafn
Rósamjaðjurt
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
F. palmata hort. non Pall.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Purpurarauður-bleikur.
Blómgunartími
Ágúst, september.
Hæð
60-120 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 130 sm há.
Lýsing
Stönglar uppréttir, rákóttir, oft purpura, hárlausir. Laufin stinn, kirtilhærð ofantil, laufleggir allt að 18 sm, axlablöð skakk-lensulaga, oft purpuralit, endableðillinn egglaga, allt að 25 sm í þvermál, 5-7 handskipt, hjartalaga við grunninn, fín-kirtilsagtennt. Blómin purpurarauð eða bleik, smá, bikarblöð smá, breið-aflöng, snubbótt, krónublöð baksveigð, hálfkringlótt, íhvolf, fræflar margir, frjóþræðir hlykkjóttir, frjóhnappar mjög litlir, stíll stuttur, boginn, frænið hnúðlaga. Færhýði 4-6, upprétt, íhvolf-oddbaugótt með löng hár eftir kjölnum.
Uppruni
Japan.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, haustsáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð, við tjarnir og læki.
Reynsla
Meðalharðgerð jurt. Þarf góðan vaxtarstað til að ná að blómstra hérlendis, hefur verið lengi í ræktun hér á landi.
Yrki og undirteg.
Yrkið 'Elegans' er með hvít blóm og rauða fræfla, 'Alba' er með hreinhvít blóm.