Filipendula rubra

Ættkvísl
Filipendula
Nafn
rubra
Íslenskt nafn
Roðamjaðjurt
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Djúp ferskjubleikur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
-150 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 250 sm há.
Lýsing
Axlablöðin nýrlaga, smálauf græn, dúnhærð aðeins á æðastrengjum á neðra borði, hárlaus að öðru leyti, endableðill allt að 20 sm í þvermál, 3-flipóttir, flipar lensulaga-aflangir, skertir, neðri smáblöð 3-5 flipótt. Blómin djúp ferskjubleik í stórum nokkuð þéttum hálfveipum.
Uppruni
A N Ameríka.
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, við tjarnir og læki, í beð.
Reynsla
Meðalharðgerð jurt, oft ruglað saman við rósamjaðjurt.
Yrki og undirteg.
'Venusta' ('Magnifica') allt að 200 sm há, blómin dökkbleik.