Filipendula ulmaria

Ættkvísl
Filipendula
Nafn
ulmaria
Íslenskt nafn
Mjaðjurt
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Rjómahvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
70-120 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 2 m há.
Lýsing
Stönglar ógreindir eða greinóttir, lóhærðir, rætur ekki með hnýði. Lauf 7-11 flipótt, endableðillinn egglaga-hálfkringlóttur, allt að 8 sm, tennt eða grunnflipótt. Blómin rjómahvít, í hálfsveip allt að 25 sm, bikarblöð 2 mm, dúnhærð, krónublöð 5-6, allt að 5 mm, með nögl. Aldin allt að 3 mm, snúin eins og gormur, hárlaus.
Uppruni
V Asía, Evrópa.
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð, við tjarnir og læki.
Reynsla
Harðgerð jurt, vex villt á Íslandi.
Yrki og undirteg.
Yrkið 'Flore Pleno' er með ofkrýnd blóm og 'Aurea' er með skærgul laufblöð.