Fragaria vesca

Ættkvísl
Fragaria
Nafn
vesca
Íslenskt nafn
Jarðarber
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10-25 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 30,5 sm, renglurnar langar, ofanjarðar, rótskeyttar. Laufin í grunnblaðhvirfingu, smálauf allt að 6 sm, egglaga, öfugegglaga eða tígullaga, sagtennt, skærgræn og ögn dúnhærð ofan, gráloðin neðan.
Lýsing
Blómin allt að 18 mm í þvermál, oftast tvíkynja, blómstilkur allt að 30 sm, 2-7 blóma, blómleggur með aðlæg dúnhærð. Bikarblöð lensulaga-oddhvass, allt að 4 mm, nær ögn fram fyrir utanbikarblöðin, fliparnir útstæðir eða aftursveigðir þegar aldinin eru þroskuð. Krónublöðin öfugegglaga eða bogadregin, allt að 5 mm. Aldnstæði allt að 1 sm, rauð, hárlaust, hnotir jafnt dreifðar yfir og skaga fram úr aldinstæðinu.
Uppruni
Evrópa.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, hliðarrenglur.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, sem þekja, í beð, í breiður, til berjatöku.
Reynsla
Harðgerð planta, vex villt á Íslandi, algeng víða um land.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun til dæmis 'Variegata' með flikrótt, rjómalit og grágræn lauf.