Fragaria x ananassa

Ættkvísl
Fragaria
Nafn
x ananassa
Íslenskt nafn
Garðajarðarber
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
(F. chiloensis x F. virginiana)
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
20-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt með fjölmargar renglur. Jarðstönglar fremur kröftugir.
Lýsing
Smálauf allt að 8x6 sm, breið-egglaga, bláleit og hárlaus ofan, hvít og með aðlæg hár á neðra borði, einkum á æðastrengjunum, gróf tennt-sagtennt, laufleggir gróf-dúnhærð. Blómin allt að 3,5 sm í þvermál, 5-15 á hverjum blómstöngli, bikarblöð aðlæg aldininu. Hnotir/fræ á kafi í heilu yfirborði. Blómbotnsins 3 sm breiður.
Uppruni
Garðablendingur (Eur.)
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting.
Notkun/nytjar
Matjurt fyrst og fremst.
Yrki og undirteg.
Ymis ræktuð yrki og kynblendingar af jarðarberjum eru yfirleitt stærri og kröftugri með stærri blóm, blöð og ber. 'Sweetheart', 'Multiplex', 'Monophylla' og fleiri.