Fraxinus excelsior

Ættkvísl
Fraxinus
Nafn
excelsior
Íslenskt nafn
Evrópuaskur / Askur
Ætt
Smjörviðarætt (Oleaceae).
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól, skjól, getur ekki vaxið í skugga.
Blómalitur
Purpuralitur.
Blómgunartími
Síðla vors.
Hæð
6-10 m
Vaxtarhraði
Meðal.
Vaxtarlag
Kröftugt tré, 6-10 m hátt en getur orðið allt að 40 m hátt í heimkynnum sínum, krónan gisin, egglaga. Börkur ljósbrúnn. Greinar hárlausar, gráar, brum í dvala eru svört. Börkur ljósgrár og sléttur á ungum trjám, skorpnar með aldrinum, árssprotar ógreinilega strendir, grágulir með fjólublárri slikju.
Lýsing
Fallega fjaðurskipt lauf, gagnstæð, 20-25 sm löng, smálauf allt að 11 talsins, legglaus, öfugegglaga, sagtennt, dökkgræn ofan, ljósari neðan, hárlaus, miðrif ögn dúnhært, ungar greinar græn-brúnar. Lítil purpuralit blómin stuttum, þéttum skúfum, sem koma á fyrra árs greinar. Hvorki með bikar né krónu. Blómin eru tvíkynja (hvert og eitt blóm annað hvort karl- eða kvenkyns), en aðeins annað kynið er á einu og sömu plöntunni, því verður því að rækta bæði karl- og kvenplöntur ef fræ á að fást. Vindfrævun, plantan frjóvgar sig ekki sjálf. Aldinvængur hangandi, aflangir, allt að 4 sm. Nær allt að 300 ára aldri.
Uppruni
Evrópa að Bretlandseyjum meðtöldum sunnan 64° breiddargráðu, N-Afríka og V Asía.
Sjúkdómar
Laus við skordýraplágur.
Harka
Z4 og er ekki viðkvæmt fyrir frosti.
Heimildir
= 1, http://apps.rhs.org.uk, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, græðlingar, ágræðsla.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré í vel skýldum görðum, blönduð beð. Karltré eingöngu notuð til skógræktar. Askurinn skipar stóran sess í Norrænu goðafræðinni. Þar sem minnst er á askinn Yggdrasil sem var eins konar miðpunktur í heimsmynd Norðurlandabúa og bar uppi himinhvelfinguna. Yggdrasill þótti bestur og stærstur af öllum trjám og heilagastur af öllu í Ásgarði Askur er eitraður fyrir jórturdýr, hefur einnig valdið exemi hjá sumum einstaklingum.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1987 og gróðursettar í beð 1991 og 2001, einnig ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1994, og ein í viðbót sem sáð var til 1999 og gróðursett í beð 2004. Meðalharðgerður - (k = 0-4), kelur mikið á unga aldri, eintök fremur ung og lítt reynd. Fallegasti askur á landinu er í Múlakotsgarðinum í Fljótshlíð enda er sumarhiti þar með því hæsta sem gerist á landinu. Til skógræktar eru fremur notuð karltré sem verða stærri en kventrén.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun erlendis en þau eru lítt eða ekki reynd hérlendis. Reyna mætti yrki með flikróttu laufi svo sem 'Aurea', 'Aurea Pendula', 'Aureovariegata', 'Jaspidea', 'Pendulifolia Purpurea' og mörg fleiri mætti nefna.