Fritillaria imperialis

Ættkvísl
Fritillaria
Nafn
imperialis
Yrki form
'Lutea'
Íslenskt nafn
Keisarakróna
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
- 150 sm
Vaxtarlag
Illalyktandi, lyktar eins og gamall refur. Laukar allt að 10 sm í þvermál, hliðflatir-hnöttóttir með ramma refalykt. Stönglar 50-150 sm háir.
Lýsing
Lauf í 3-4 krönsum með 4-8 lensulaga laufum. Blómin 3-5 í sveip, breið-bjöllulaga, stoðblöð 10-20 í þéttstæðum toppi ofan við blómin. Blómhlífarblöð 40-55 mm, gullgul. Hunangskirtlar allt að 5 mm í þvermál, við grunninn á blómhlífarblöðnum, hringlaga, stórir, hvítir. Stíll 4,5 sm, 3-greindur, greinar 1-4 mm, nöbbóttar efst. Fræhýði með vængi.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Sunnan undir vegg í skjóli.
Reynsla
Viðkvæm, helst er að gula afbrigðið geti þrifist sæmilega. Annars blómstra laukarnir oftast aðeins fyrsta árið eftir að þeir hafa verið gróðursettir. Plantan getur lifað mörg ár án þess að blómstra.