Galtonia candicans

Ættkvísl
Galtonia
Nafn
candicans
Íslenskt nafn
Svanalilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Snjóhvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 120 sm
Vaxtarlag
Lauf 50-100 x 5 sm, 4-6, borðalaga-lensulaga, hálfupprétt, ögn grágræn.
Lýsing
Blómstilkur allt að 120 sm, klasi allt að 40 sm, grannur, allt að 15 blóma, blómin drúpa, ilma. Blómleggir 2,5-6 sm. Stoðblöð 3-4 x 1 sm, egg-lensulaga, ydd. Blómhlíf 3 sm, snjóhvít með daufa græna slikju við grunn pípunnar, fliparnir 2 x lengri en pípan. Aldin um 3 sm, upprétt, fræin svört.
Uppruni
S-Afríka.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í kanta, við hlýja húsveggi.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2005 og gróðursett í beð 2010.