Genista tinctoria

Ættkvísl
Genista
Nafn
tinctoria
Íslenskt nafn
Lithrís
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gullgulur
Blómgunartími
Sumar
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Mjög breytileg tegund. Uppréttur eða uppsveigður runni, þyrnalaus, allt að 2 m hár.
Lýsing
Lauf allt að 5 × 1,5 sm, heil, legglaus, oddbaugótt, lensulaga eða öfugegglaga, skærgræn, jaðrar hárlausir, randhærðir. Blómin mörg í ógreindum eða greinóttum klasa á greinaendunum, gullgul. Smástoðblöð allt að 1 mm, bandlaga. Blómleggir allt að 2 mm. Bikar allt að 7 mm, hárlaus, fáni allt að 12 mm, breiðegglaga, hárlaus, kjölur og vængir jafn langir og fáninn. Kjölur hárlaus. Aldin allt að 3,5 sm, mjóaflöng, oftast hárlaus, með 4-10 fræ.
Uppruni
Mestur hluti Evrópu.
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1995 og gróðursett í beð 2002.