Gentiana hexaphylla

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
hexaphylla
Íslenskt nafn
Kransavöndur*
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blár, gulhvítur við grunninn.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
20 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 5-20 sm há. Engin hvirfingarlauf eða illa þroskuð, laufblaðkan þríhyrnd, 5-10 x 12,5-2 mm, himnukennd, 2-3 mm grunnsins samvaxinn, jaðar ekki snarpur, miðstrengur áberandi. Stöngullauf í 6-7- blaða hvirfingum, stærri og þéttstæðari eftir því sem nær dregur toppnum, efstu laufin umlykja bikarinn. Jaðrar laufblöðkunnar ekki snarpir, blaðkan hvassydd, miðtaugin áberandi á neðra borði. Neðstu stöngullaufin visna við blómgun, lensulaga til egglaga, 2,5-6 x 1-2 mm, hvassydd, mið- og efstu laufin bandlaga-spaðalaga, 5-15 x 1,5-3 mm.
Lýsing
Blómin endastæð, stök, legglaus, (5- eða)6 eða 7-(eða 8)-deild. Bikarpípan mjó-öfugkeilulaga, 8-10 mm, flipar band-spaðalaga, 5-11 mm, laufkenndir, jaðar ekki snarpur, miðtaugin áberandi, snubbótt. Krónan blá með föl gulhvítan grunn og dökkbláar rákir, pípulaga-bjöllulaga, 3,5-5 sm, flipar breiðegglaga til egglaga-kringlóttir, 4,5-6 mm, jaðar trosnaður, hvassyddir til snubóttir og með 2-2,5 mm rófuodd. Ginleppar breið-þríhyrndi, 0,5-1 mm, jaðar trosnaður, snubbótt. Fræflar festir við grunninn á krónupípunni, frjóþræðir 2-3 mm, frjóhnappar mjó-oddvala, 2-3 mm. Stíll 3-5 mm, frænisflipar aflangir. Aldinhýði egglaga-oddvala, 1,3-1,7 sm, eggbúsberi allt að 5 sm. Fræ ljósbrún, oddvala til egglaga, 1,2-1,5 mm.
Uppruni
N & V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1,2, The flora of China http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200017981
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
Reynsla
Ekki í ræktun sem stendur í garðinum. Er á óskalista. Vex í heimkynnum sínum í graslendi, vegköntum og engjum til fjalla í 2700-4400 m hæð. S Gansu, ASA Quinghai, Shaanxi (Taibai Shan), N og V Sichuan.