Gentiana lutea

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
lutea
Íslenskt nafn
Gulvöndur
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
100-150 sm
Vaxtarlag
Uppréttur fjölæringur, allt að 150 sm eða hærri. Stönglar ógreindir, holir, stönglar vaxa upp af langri og gildri stólparót.
Lýsing
Grunnlauf lensulaga-oddbaugótt til breiðegglaga, ydd eða bogadregin í oddinn, allt að 30 x 15 sm, bogstrengjótt með 5-7 stóra æðastrengi. Stöngullauf mjórri en hvirfingarlaufin, legglaus. Blómleggir vaxa úr öxlum hvirfingarlaufa, engin hreisturlauf við grunninn. Blómin með leggi, mörg saman (3-10,) í skúf á stöngulendum og/eða í blaðöxlum. Bikarpípan allt að 1,2 sm, pappírskennd, klofin niður á einni hlið, engar tennur eða örsmáar. Króna gul, sjaldan rauðleit með mjög stutta krónupípu og 3-9 útstæða flipa. Engir ginleppar. Fræflar venjulega ekki samvaxnir. Aldinhýði með legg.
Uppruni
Fjöll M & SA Evrópu frá Spáni til Grikklands.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Aftan til í fjölæringabeð, sem stakstæð eða með lægri plöntur í kring.
Reynsla
Skipta plöntunni sjaldan/aldrei, nokkuð vinsæl garðplanta sem er víða í ræktun hérlendis, þrífst vel.