Gentiana macrophylla

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
macrophylla
Íslenskt nafn
Blaðvöndur
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Blár eða blápurpura, gulleit neðst.
Blómgunartími
Júlí-október.
Hæð
Allt að 60 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur 30-60 sm hár. Rætur allt að 30 x 2 sm. Stönglar uppsveigðir eða uppréttir, stinnir, ógreindir, hárlausir. Leggur grunnlaufa 3-5 sm, himnukenndur, laufblaðkan oddbaugótt-lensulaga til oddbaugótt-egglaga, 6-28 x 2,5-6 sm, grunnur mjókkar, jaðar snarpur, blaðkan langydd, 5-7 tauga. Stöngullauf í 3-5 pörum, leggur þeirra allt að 4 sm, himnukenndur, laufblaðka oddbaugótt-lensulaga til mjó-oddbaugótt, 4,5-15 x 1,2-3,5 sm, grunnur snubbóttur, jaðar snarpur, blaðkan langydd, 3-5 tauga.
Lýsing
Blómskipanirnar í þyrpingum í endastæðum kollum, margblóma, stundum líka í fáblóma axlastæðum krönsum, axlastæðu kransarnir eru legglausir, sjaldan á grein sem minnir á blómskipunarlegg. Blómin legglaus. Bikarpípa minnir á hulsturblað, himnukennd, klofin á einni hlið, flipar 4 eða 5, líkir tönnum, 0,5-1 mm. Krónan blápurpura með fölgulan grunn, pípulaga eða krukkulaga, flipar egglaga, 3-4,5 mm, heilrend, snubbótt í oddinn til næstum bogadregin. Ginleppar þríhyrndir, 1-1,5 mm, jaðar heilrendir, hvassyddir. Fræflar festir rétt neðan við miðju krónupípunnar að innanverði, frjóþræðir 5-7 mm, frjóhnappar mjó eggvala, 2-2,5 mm. Stíll 1,5-2 mm, frænisflipar aflangir. Aldinhýði egglaga-oddvala, 1,5-1,7 sm, eggbúsberi stuttur. Fræin ljósbrún, oddvala, 1,2-1,5 mm.
Uppruni
N Kína, Kazakhstan, N Mongólía og Rússland (Síbería)
Heimildir
= 2, Flora of China http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200018006
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Stutt, í E4 frá 2000
Yrki og undirteg.
var. macrophylla: Bikar um 1/3 af lengd krónu. Króna krukkulaga, 1,8-2 sm, flipar 3-4 mm. Heimkynni: N Kína í 400-2400 m. (Hebei, Nei Mongol, Ningxia, Shaanxi, Shandong, Shanxi) + N Mongolia og Rússland (Sibería).var. fetissowii (Regel & Winkler) Ma & K.C. Hsia (Syn.: Gentiana wutaiensis Marquand). Bikar um ½ af lengd krónu. Króna pípulaga 2-2,5 (-2,8) sm, flipar 3,5-4,5 mm. Heimk.: N Kína í 600-3700 m.