Gentiana punctata

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
punctata
Íslenskt nafn
Dröfnuvöndur
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Grængulur.
Blómgunartími
Júli-ágúst.
Hæð
50-60 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 60 sm há. Stönglar stinnir, uppréttir með málmgljáa. Löng stólparót.
Lýsing
Grunnlauf með legg, oddbaugótt, mjókkar snögglega í odd, 5-tauga, allt að 10 x 6 sm. Stöngullaufin mjó, verða leggstyttri eftir því sem ofar dregur á stönglinum. Blómstönglar vaxa úr brumum í blaðöxlum hvirfingarlaufanna, án hreisturlaufa við grunninn. Blóm legglaus, mörg saman á stöngulendum eða í blaðöxlunum. Bikarpípa allt að 1 sm, flipar 5-8, uppréttir, yddir, grænir. Króna breiðpípulaga með 5-8 flipa, 1,4-3,5 sm, grængul, oftast með dökkpurpuralitar dröfnur. Flipar styttri en krónupípan, útstæðir. Ginleppar litlir, snubbóttir. Fræflar samvaxnir í fyrstu, síðar lausir hvor frá öðrum. Aldinhýði legglaus
Uppruni
M Evrópa (fjöll).
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning að hausti, skipting.
Notkun/nytjar
Í stórar steinhæðir, i fjölæringabeð, í kanta.
Reynsla
Hefur reynst vel í Lystigarðinum og verið lengi í ræktun í görðum hérlendis.