Gentiana purpurea

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
purpurea
Íslenskt nafn
Purpuravöndur
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Purpurarauður utan, gulleitur með purura dröfnum að innan.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
40-80 sm
Vaxtarlag
Uppréttur fjölæringur, 20-60 sm hár, holir stönglar með egglensulaga, 5-tauga lauf, laufin gagnstæð, neðri laufin með legg, þau efri legglaus. Líkist gulvendi í vaxtarlagi.
Lýsing
Grunnlaufin að 20 x 5 sm, egglaga-aflöng eða egglensulaga, ydd, með legg, bogstrengjótt, 5 tauga. Stór, upprétt, legglaus blómin,5-10 saman í höfði á stöngulendum, stöku sinnum líka í efstu blaðöxlum. Blómin bjöllulaga, dálítið útbreiddari efst með 5-8 snubbótta krónuflipa, purpurarauð utan, gulleit með purura dröfnum að innan. Auðgreind frá náskyldum tegundum á stórum, klofnum, slíðurlíkum bikar og snubbóttum bikarflipum sem eru breiðastir um miðju.
Uppruni
Alpa- og Savoy-fjöll frá Austurríki til N Ítalíu, Appenninafjöll, S Noregur.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Er á mikilli stólparót og þolir illa allan flutning/hnjask, best að grisja sáningar fremur en prikla út.
Yrki og undirteg.
Yrkið 'Nana' er um það bil 25 sm á hæð.