Gentiana straminea

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
straminea
Íslenskt nafn
Hlíðavöndur
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Gulgrænn, grænar doppur í gininu.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 30 sm hár. Stönglar uppsveigðir.
Lýsing
Grunnlauf í blaðhvirfingum, allt að 12,5 x 2 sm, band-lensulaga, ydd, 5 tauga. Stöngullauf að 5 sm, í 2-3 pörum, samvaxin við grunn, bandlaga-aflöng. Blóm allmörg, endastæð, á löngum legg. Bikar 1,5 sm, himnukenndur, klofin niður á einni hlið, flipar 2-3, smáir, minna á tennur. Króna 3-3,5 sm, öfugkeilulaga, grænhvít til strágul flipar egglaga. Ginleppar með framstæðar tennur,gaffalgreindar, 1/3 af lengd flipans, frjóhnappar samvaxnir, losna sundur með aldrinum. Aldinhýði með legg.
Uppruni
M & NV Kína, NA Tíbet.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
Reynsla
Í E4-F06 frá 1994 og þrífst þar vel.