Gentiana tibetica

Ættkvísl
Gentiana
Nafn
tibetica
Íslenskt nafn
Vængjavöndur*
Ætt
Maríuvandarætt (Gentianaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Fölgulur til gulgrænn, með dökkbrúna slikju á ytra borði.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
40-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 40-50 sm á hæð. Rætur allt að 30 x 2 sm. Stönglar uppréttir, stinnir, ógreindir, hárlausir. Leggur grunnlaufa 5-7 sm, himnkenndur, laufblaðkan mjó-oddbaugótt til egglaga-oddbaugótt, 9-16 x 4-5,5 sm, mjókkar við grunninn, jaðar snarpur, oddur langyddur til hvassyddur, 7-9 tauga. Stöngullauf í 3-5 pörum, laufleggurinn allt að 3,5 sm, himnukenndur, laufblaðkan oddbaugótt-lensulaga til egglaga-oddbaugótt, 9-16 x 4-5,5 sm, snubbótt eða hálfsnubbótt við grunninn, jaðar snarpur, langydd eða hvassydd, 3-5 tauga, efstu laufin greinilega stór, legglaus, útstæð og lykja um blómaþyrpinguna.
Lýsing
Blómskipunin þétt, endastæð, margblóma, blómin eru líka í fáblóma krans í blaðöxlunum, en sjaldan. Blómin legglaus. Bikarpípa lík slíðri, 6-8 mm, himnukennd, klofinn á einni hlið, þverstýfð í toppinn, með 5 flipa, sem minna á tennur, 0,3-0,5 mm. Krónan er fölgul til gulgræn á innra borði, krónutungan er með dökkbrúna slikju á ytra borði, krónan er breiðpípulaga, (2,6-)3-3,2 sm, flipar egglaga-þríhyrndir, 4-5 mm, heilrendir, hvassyddir. Ginleppar þríhyrndir, 0,5-1,5 mm, ósamhverfir, jaðar smátenntur, hvassyddir. Fræflar festir um miðja krónuna innanverða, frjóþræðir 7-9 mm, frjóhnappar mjó oddvala, 1,5-2 mm. Stíll 2,5-3, frænisflipar aflangir. Aldinhýði legglaus, oddvala til egglaga-oddvala, 1,8-2,2 sm. Fræ ljósbrún, oddvala, 1,3-1,5 mm.
Uppruni
Kína (S og SA Xizang) Bhutha, Nepal, Sikkim.
Heimildir
= 2, Flora of China www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200018113
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
Reynsla
Nokkur eintök eru til í Lystigarðinum, þrífast vel.
Útbreiðsla
Vex á jöðrum ræktaðs lands, á vegkantum, í skógarjöðrum í 2100-4200 m hæð yfir sjó í heimkynnum sínum S. og SA Xizang (Bhutan, Nepal, Sikkim).