Geranium pratense

Ættkvísl
Geranium
Nafn
pratense
Yrki form
'Splish Splash'
Íslenskt nafn
Garðablágresi
Ætt
Blágresisætt (Geraniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur með bláar flikrur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 75 sm há. Jarðstönglar þéttir.
Lýsing
Flott yrki frá Thompson & Morgan.Grunnlauf allt að 20 sm breið, skipt í 7-9 mjóa flipa, fjaðurskipta, separ beinast út á við, allt að 10 mm breiðir við grunninn, jaðrar með hvassar eða snubbóttar tennur, aðlæg hár á efra borði, æðatrengir á neðra borði hærðir, laufleggur hærður. Stöngullauf smærri, með styttri legg, djúpgræn. Blómskipunin er með flatan topp, blómskipunarleggir allt að 10 sm, blómin skállaga. Bikarblöð allt að 12 mm, mjókka í oddinn, oddurinn allt að 3,5 mm. Krónublöð allt að 22 mm, bogadregin í oddinn, hvít með blár flikrur, fræflar lengri en bikarblöðin. Frjóþræðir dökkbleikir, hærðir við grunninn, frjóhnappar dökkir. Ung aldin og blómleggir baksveigðir, trjóna allt að 30 mm, frævur allt að 5 mm, fræjum slöngvað burt.
Uppruni
Yrki.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð, í blómaengi.
Reynsla
Hefur staðið sig vel í Lystigarðinum.