Geranium tuberosum

Ættkvísl
Geranium
Nafn
tuberosum
Íslenskt nafn
Hnúðblágresi
Ætt
Blágresisætt (Geraniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Purpurafjólublár, æðar dekkri.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Upprétt, fjölær jurt, allt að 40 sm há, ekki með kirtilhár. Hnýði allt að 15 mm breið, hanga við jarðstönglanna á mjóum þráðum.
Lýsing
Laufin allt að 10 sm í þvermál, djúpskipt næstum að grunni í 7 hluta, mjó fjaðruflipótt, fliparnir tenntir, hver flipi ekki breiðari 3 mm, efri laufin í pörum, legglaus. Blómskipunin ekki með blómskipunarleggir, blómin 30 mm í þvermál, bikarblöð 8 mm, innra borðið með purpura blæ, oddur 1 mm. Krónublöð 17 x 13 mm, breiðust í oddinn, sýld, purpurafjólublá, æðarnar dekkri, gaffalgreindar. Frjóþræðir sverir við grunninn, hærðir. Frjóhnappar djúpbláir. Fræni skærrauð, 2,5 mm. Trjóna 17 mm. Fræjum slöngvað burt, trjónuendar detta af eftir að fræjunum hefur verið slöngvað burt.
Uppruni
Miðjarðarhafslönd.
Harka
8
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting (jarðstöngulhnýðin pilluð sundur).
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í breiður, í steinhæð, í beð.
Reynsla
Harðgerð jurt, breiðist nokkuð hratt út. Þarf að skipta reglulega.