Geranium x cantabrigiense

Ættkvísl
Geranium
Nafn
x cantabrigiense
Yrki form
'Biokovo'
Íslenskt nafn
Skrúðblágresi
Ætt
Blágresisætt (Geraniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærbleikur eða hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 30 sm há, skriðul. Blendingur stólpablágresis (G. macrorrhizum) og dalmatíublágresis (G. dalmaticum).
Lýsing
Grunnlauf allt að 9 sm breið, 7-skipt, sepótt, ljósgræn, tennt. Blómin allt að 28 mm í þvermál, lík stólpablágresi (G. macrorrhizum), krónublöðin skærbleik eða hvít með bleika slikju við grunninn. Ófrjó.
Uppruni
Yrki.
Harka
5
Heimildir
= 1, https://www.rhs.org.uk/
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti.
Notkun/nytjar
Í beð, í kanta, sem undirgróður.
Yrki og undirteg.
'Biokovo' er kröftugur, hálfsígrænn fjölæjurt sem myndar breiður,allt að 20 sm há. Laufin ilmandi, bogadregin, laufin flipótt, blómin mjög fölbleik, 2,5 sm breið, með djúpbleika fræfla, blómstrar snemmsumars.