Geranium x oxonianum

Ættkvísl
Geranium
Nafn
x oxonianum
Yrki form
'Winscombe'
Íslenskt nafn
Skrautblágresi
Ætt
Blágresisætt (Geraniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Blendingur haustblágresis (G. endressii) og grikkjablágresi* (G. versicolor). Þetta er frjó, laufótt jurt, allt að 80 sm há, þ. e. aðaltegundin.
Lýsing
Laufin lík og á Geranium versicolor, en með dýpri sepa en á haustblágresi (G. endressii), 5-20 sm breið, dálítið hrukkótt, með dáítið af brúnum blettum. Blómin trektlaga, allt að 40 mm í þvermál, Bikarblöð allt að 11 mm. Krónublöð bleik, sýld, æðar með oftast með dýpri lit, netæðótt, allt að 26 x 15 mm. Fræum slöngvað burt.
Uppruni
Yrki
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti.
Notkun/nytjar
Í beð, sem undirgróður.
Reynsla
Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
Yrki og undirteg.
'Winscombe' er allt að 40 sm há jurt. Blómin eru fjölmörg, mjög fölbleik en dökkna með aldrinum með dekkri æðar.