Geum triflorum

Ættkvísl
Geum
Nafn
triflorum
Íslenskt nafn
Þrídalafífill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Ljósgulur - dumrauð slikja.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
15-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 15-40 sm há.
Lýsing
Laufin allt að 15 sm, aflöng til öfugegglaga, með allt að 30-laufa, smálaufin misstór, bandlaga til aflöng, smádúnhærð, loðinn eða langhærð, grá. Blómstönglar allt að 40 sm, blómin í 1-9 blóma skúf, bikar dumbrauður til bleikur eða næstum gulur, hvirfillaga eða bjöllulaga til bollalaga, flipar allt að 12 mm, aðfelldir, uppréttir til samanluktir. Krónublöð allt að 5 mm, ljósgul með dumbrauða slikju, opnast, upprétt til samanlukt, mjó til breið-egglaga eða oddbaugótt-öfugegga. Fræhnetur perulaga, 3 mm, stíll allt að 5 sm, purpura, beinn eða snúinn, áberandi fjaðurlaga neðst.
Uppruni
N Ameríka.
Harka
1
Heimildir
= 1, https://en.wikipedia.org/wiki/Geum_triflorum
Fjölgun
Skipting, sáning (þroskar þó illa fræ hérlendis) skipta plöntunni reglulega.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í beð.
Reynsla
Harðgerð, bestur í steinhæð eða stórar þyrpingar.