Globularia nudicaulis

Ættkvísl
Globularia
Nafn
nudicaulis
Íslenskt nafn
Snoðhnyðra
Ætt
Hnoðblómaætt (Globulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Föl gráfjólublár.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Smárunni með skriðula, trjákennda stöngla, sem rætast á stöngulhnjánum. Blómstönglar 1-10 sm, lauflausir eða með 1-2 lítil lauf.
Lýsing
Hvirfingalauf sígræn, allt að um 25 x 8 mm, spaðalaga, oftast framjöðruð, stundum broddydd eða 3-tennt, þar sem hliðatennurnar ná lengra fram en miðtönnin, flöt, með lauflegg. Karfan 1-2 sm í þvermál, reifablöð mörg, egg-lensulaga til egglaga, langydd mjókka smám saman upp á við. Bikar 2-vara, tennur lensulaga, langyddar.
Uppruni
Fjöll í M & S Evrópu.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, með sumargræðlingum, með fræi.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta á vel framræstu beði.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum.