Gymnocarpium dryopteris

Ættkvísl
Gymnocarpium
Nafn
dryopteris
Íslenskt nafn
Þrílaufungur
Ætt
Skjaldburknaætt (Dryopteridaceae).
Lífsform
Fjölær burkni.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Hæð
15-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær burkni. Jarðstönglar allt að 20 x 0,1-0,2 sm, lítið greindir, svartir, glansandi, yngri hlutarnir þaktir föl-brúnu, egglaga hreistri.
Lýsing
Burknalaufin allt að 40 sm, uppvafin þegar þau eru ung, og hvert líkist 3 litlum kúlum á vír, laufleggurinn hárlaus með fáein hreistur. Blaðkan breið þríhyrnd, 3-fjaðurskipt, skær gulgræn, þunn, hárlaus, niðurorpin, smálauf gagnstæð, um 6 pör, það neðsta oft jafn stórt og það sem eftir er af blöðkunni, með millibili, þríhyrnd, ydd eða snubbótt, 2-fjaðurskipt, legglöng, leggirnir greinilega festir við aðallegginn, 2. par af smálaufum aflangt-lensulaga að útlínum til, fjaðurskipt, með eða án leggs, önnur smáblöð fjaðurskipt til fjaðurskert, ydd eða snubbótt, verða legghlaupin, legglaus, bleðlar fyrsta smáblaðsins fjaðraðir, egglaga eða aflangir, bogadregnir í oddinn, heilrendir, bogtenntir eða fjaðurtenntir. Bleðlar efstu smáblaðanna líkjast neðstu smáblöðunum á fyrsta pari smáblaða, blaðleggur hárlaus.
Uppruni
Norðurhvel
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning (gró), skipting.
Notkun/nytjar
Í burknabeð, sem undirgróður.
Reynsla
Þolir illa næðinga.