Hosta fortunei

Ættkvísl
Hosta
Nafn
fortunei
Yrki form
'Aureomarginata'
Íslenskt nafn
Forlagabrúska
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Hosta fortunei var. aureomarginata, H. 'Obscura Marginata' (fortunei)
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Hálfskuggi, skjól
Blómalitur
Ljós blápurpura
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
Allt að 75 sm
Vaxtarhraði
Er 2-5 ár að ná fullri stærð.
Vaxtarlag
Sumargrænn fjölæringur sem myndar brúsk. Laufin eru óskipt, egglaga eða lensulaga, oft flikrótt með fallega liti, breið hjartalaga við grunninn.
Lýsing
Blómskipunarleggurinn er uppréttur með drúpandi, trektlaga blóm snemmsumars. Blómin ljós blápurpura á laufóttum 75 löngum stilk. Laufin 20-25 sm löng, með áberandi æðar og óreglulega gula jaðra.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Oftast laus við sjúkóma.
Heimildir
https://www.rhs.org.uk/Plants/69718/Hosta-fortinei-var-aureomarginata-(v)/Details?returnurl
Fjölgun
Skipting síðsumars eða senmma vors.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í beðkanta, sem undirgróður, í ker. Það getur þurft að verja plöntuna fyrir sniglum.
Reynsla
Plantan kom í Lystigarðinn 1996. Sein til. Þrífst vel í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
H. fortunei (Baker) L.H. Bailey er samnefni H. sieboldiana (Hook.) Engl.