Hosta undulata

Ættkvísl
Hosta
Nafn
undulata
Íslenskt nafn
Bylgjubrúska
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi, skjól.
Blómalitur
Fölpurpura.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50 sm
Vaxtarlag
Mismunandi garðaklónar eru til sem einkennast af undnum laufblöðum. Kröftug planta sem myndar meðalstóran brúsk. Ungir sprotar rauðpurpura, glansandi. Lauf 11-15 x 4-6 sm, egglaga-aflöng til lensulaga-oddbaugótt, mjög mikið bylgjuð, langydd, oft undin um ca. 180 gráður, grunnur legghlaupinn, oft innundinn, laufin þunn en leðurkennd, miðjan er rjómalit, jaðar ólífugrænn, óregluleg, glansandi, 7-9 tauga á neðra borði, (laufin sem koma seinna eru ekki með eins fallega liti), Laufleggur 13 sm, með djúpa rennu og með væng, græn með hvítar rákir og purpuralita bletti við grunninn.
Lýsing
Blómstilkur allt að 30 sm langur, ögn gáraður, rjómalitur með purpuralita slikju og með grænar línur. Stoðblöð laufkennd, 7,5 sm, bátlaga, hvít-græn flikrótt, á efri hluta stilksins. Stoðblöð blómanna hvít með græna jaðra, visna að blómgun lokinni. Blóm fölpurpura, 30-40, í klösum. Frjóhnappar fjólubláir, ófrjóir.
Uppruni
Garðauppruni (Japan).
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting að vori, græðlingar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í fjölæringabeð, við tjarnir og læki.
Reynsla
Fallegust í hálfskugga, gerir ekki miklar kröfur.
Yrki og undirteg.
Ýmis yrki eru til svo sem 'Albomarginata' sem er með hvítrákótt lauf.