Hylomecon vernalis

Ættkvísl
Hylomecon
Nafn
vernalis
Íslenskt nafn
Rjóðurvalmúi*
Ætt
Draumsóleyjarætt (Papaveraceae)
Samheiti
Réttara: H. japonica (Thunb.) Prantl in Engler & Prantl.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Maí-ágúst.
Hæð
15-40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 15-40 sm há með gulan mjólkursafa, lítið eitt dúnhærð, verður hárlaus með aldrinum. Jarðstönglar skástæðir, 2-5 sm, hvítir, appelsínugulir þegar að aldinþroska kemur, kjötkenndir, með brúnt himnukennt hreistur. hreistrin kringlótt, 4-8 mm í þvermál. Stönglar uppréttir, grænir eða rauðpurpura, ógreindir, jurtkenndir, rákóttir, hárlausir. Grunnlauf fá með langan legg, blaðkan grænleit á neðra borði, græn á efra borði, 10-15(-20) sm, fjaðurskipt, flipar í 2-3 pörum, breið lensulaga-tígullaga, öfugegglaga-tígullaga eða næstum oddbaugótt, 3-7(-10) x 1-5 sm, hárlaus bæði ofan og neðan, grunnur fleyglaga, jaðrar óreglulega bogtenntir eða tvísagtenntir, stundum skift eða skert eða fjaðurskipt og fliparnir óreglulega skertir aftur, langydd. Stöngullauf oftast 2, sjaldan 3.
Lýsing
Blómskipunin endastæð, stundum í blaðöxlunum, 1- eða 2(eða3)-blóma. Blómleggir uppréttir, grannir, 3,5-7 sm. Blómknúppar egglaga, 8-10 mm, hárlausir eða lítið eitt hærðir. Bikarblöð egglaga, 1-1,5 sm, með ullhár á víð og dreif eða hárlaus á neðra borði, sköruð í knúppnum. Krónublöð öfugegglaga eða næstum kringlótt, 1,5-2 sm, sköruð í knúppnum, snögglega útflött við blómgun, með stutta nögl neðst. Fræflar gulir, um 6 mm, frjóhnappar kringlóttir eða aflangir. Eggleg um 7 mm, stílar mjög stuttir, fræni með 2 flipa. Fræhýði 5-8 sm x um 3 mm, hárlaus, tvíhólfa, með langæjan stíl allt að 1 sm langan. Fræ eru egglaga, um 1,5 mm.
Uppruni
Kína, Japan, Kórea, Rússland (A Síbería).
Harka
7
Heimildir
1, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200009159
Fjölgun
Skipting, sáning. Auðvelt að skipta.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður undir tré og runna.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá 1983, sem hefur lifað lengi á sama stað og þrifist vel.
Yrki og undirteg.
var. japonica: Flipar grunnlaufa eru óreglulega bogtennt eða tvísagtennt.------var. subincisa Fedde : Neðstu hlutar grunnlaufa eru skiptir, skertir eða fjaðurskiptir. Neðsti laufhlutinn er einhliða eða tvíhliða skiptur eða skertur. --------------var. dissecta (Franchet & Savatier) Fedde: Neðstu hlutar grunnlaufa eru skiptir, skertir eða fjaðurskiptir. Lauf eru fjaðurskipt, flipar óreglulega skertir aftur.