Hypericum cistifolium

Ættkvísl
Hypericum
Nafn
cistifolium
Íslenskt nafn
Sólargullrunni*
Ætt
Gullrunnaætt (Hypericaceae).
Lífsform
Sumargrænn runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
30-100 sm
Vaxtarlag
Runni, allt að 30-100 sm hár, ekki með svarta kirtla. Stönglar uppréttir, oftast ógreindir, en stundum lítið eitt greinóttir efst og greinarnar mjóar.
Lýsing
Laufið 15-40 x 4-8 mm, legglaus, mjólensulaga mjó-bandlaga-oddbaugótt eða mjóaflöng til öfuglensulaga. Blaðoddur snubbóttur til bogadreginn, grunnur breið-fleyglaga til bogadreginn, jaðrar niðursveigðir, ljósari á neðra borði, stundum bláleit, þunn-leðurkennd, æðar ógreinilegar. Blóm 0,9-1,2 sm í þvermál, um 10-120, vaxa úr endastæðu hné, næsta hné og greinum sem vaxa frá neðri hnjám, saman mynda þau öll hvelfdan hálfsveiplaga skúf. Bikarblöð 5, misstór, 2,5-4 mm, stækka ekki, öfugegglaga til aflöng, snubbótt til bogadregin, jaðrar flatir. Krónublöð 5, gullgul, 5-6,5 mm, um 1,5-2 x stærri en bikarblöðin, öfugegglaga til öfuglensulaga, verða baksveigð. Fræflar um 0,5 x krónublöðin, knippin ekki greinileg. Stílar 3, 1,8 2 mm, 0,8 - 2 x egglegið, aðlæg. Ilmkirtlar á fræhýði ekki áberandi.
Uppruni
SA Bandaríkin.
Harka
8
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í brekkur, í kanta á runnabeðum.