Hypericum orientale

Ættkvísl
Hypericum
Nafn
orientale
Íslenskt nafn
Tyrkjagullrunni
Ætt
Gullrunnaætt (Hypericaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
7-45 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 7-45 sm há, ekki með svarta kirtla. Stönglar uppréttir eða útafliggjandi, stundum rótskeyttir. Lauf 10-40 x 2-10 mm, legglaus, mjóaflöng eða oddbaugótt-aflöng til öfuglensulaga eða bandlaga, bogadregin í oddinn eða sljóydd, jaðrar með gullgulyddar kirtiltennur eða eru kirtil-randhærð, grunnur fleyglaga, ögn ljósari neðan, ekki bláleit, þykk-pappírskennd, æðamynstrið ekki netæðótt, jaðrar eyrnablaða með kirtila.
Lýsing
Blóm 1,5-3 sm í þvermál, stjörnulaga, 1-ca17, vaxa frá 1-4 stöngulliðum, eru í hálfsveip eða stuttri, sívalri blómskipun. Bikarblöð 6-8 mm, aflöng-öfuglensulaga, fræflar 0,6x krónublöðin, fræflarnir 3 og 3 saman í knippum. Stílar 3 talsins, 8-10 mm, 2-3,3x egglegið, ekki samvaxnir, útstæðir. Olíukirtlar á fræhýði bandlaga.
Uppruni
Tyrkland (V & N Anatolia) Rúaaland (A Georgia, V Azerbajan).
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáninga að vorinu.
Notkun/nytjar
Í beð, í steinhæðir, í hleðslur, í kanta.
Reynsla
REYNSLA. Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2010 og gróðursettar í beð 2011, báðar þrífast vel.