Incarvillea zhongdianensis

Ættkvísl
Incarvillea
Nafn
zhongdianensis
Íslenskt nafn
Fjallaglóð
Ætt
Lúðurtrésætt (Bignoniaceae).
Samheiti
I. mairei f. multifoliata
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skær rósbleikur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
25-30 sm
Vaxtarlag
Falleg Incarvillea tegund, aðgreind frá I. mairei með því að vera með mörg lauf (þroskuð þúfa er oft með 20 lauf/plöntu) með 5-9 pör af litlum hliðarlaufum og stór fagurrauð blóm með gult gin og með 2 hvítar rákir við grunn hvers flipa.
Lýsing
Laufin fjaðurskipt, glansandi græn.
Uppruni
Kína, NV Yunnan.
Heimildir
= https://www.jelitto.com/Seed/Perennials/INCARVILLEA+zhongdianensis+Portion+s.html, https://www.kevockgarden.co.uk/plantlist/p1609_incarvillea_younghusbandii.htm
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæð á sólríkan stað, sunnan undir vegg.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, var sáð 2004 og gróðursett í steinhæð 2007.