Inula ensifolia

Ættkvísl
Inula
Nafn
ensifolia
Íslenskt nafn
Sverðsunna
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
40-60 sm
Vaxtarlag
Uprétt, fjölær jurt, allt að 60 sm há. Stöngullinn ógreindur, hárlaus eða lóhærður.
Lýsing
Laufin allt að 9x1 sm, bandlensulaga eða lensulaga, heilrend, með 3-7 samsíða æðar, hárlaus, randhærð, legglaus, oft dálítið umlykjandi. Karfan með tungukrónur, stök eða fáeinar saman, reifar hvolflaga, 1-2 sm í þvermál. Reifablöð silkihærð-skúmhærð við grunninn, ytri reifablöðin allt að 3,6 mm breið, þríhyrnd-egglaga, útstæð í oddinn, innri reifablöð allt að 2 mm breið, bandlaga-lensulga. Aldin allt að 3 mm, hárlaus eða með fín þornhár við oddinn á geislablómunum allt að 23 mm.
Uppruni
A & AM Evrópa
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum.
Reynsla
Hefur verið af og til Í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
'Compacta' 15 sm há með gullgul blóm, 'Gold Star' 30 sm há með gullgul blóm og fleiri