Inula hookeri

Ættkvísl
Inula
Nafn
hookeri
Íslenskt nafn
Dúnsunna
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær - hálfrunni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
30-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt eða hálfrunni, allt að 60 sm hár, stöngull ógreindur eða lítið eitt greindur, oftast hærður ofantil.
Lýsing
Lauf allt að 13 x 4 sm, aflöng-lensulaga, hvassydd, smátennt, hærð, neðri með stuttan legg, þau efri legglaus. Karfan með geislablóm, karfan stök eða 2-3 saman, reifar hvolflaga, allt að um 4 sm í þvermál, reifablöð allt að um 2,5 sm, sýllaga, baksveigð, langhærð, geislablóm um 2,5 sm. Aldin 2-3 mm, hárlaus.
Uppruni
Himalaja.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum.
Reynsla
Harðgerð-meðalharðgerð planta, lofar góðu í Lystigarðinum.