Inula royleana

Ættkvísl
Inula
Nafn
royleana
Íslenskt nafn
Fjallasunna
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-60 sm
Vaxtarlag
Kröftug fjölær jurt, allt að 60 sm há. Stönglar oft greinóttir, greiptir, dúnhærðir eða langhærðir og kirtilhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 25 × 15 sm, egglaga eða aflöng, snubbótt, smátennt, hálf-hárlaus, dúnhærð eða langhærð ofan, stundum lóhærð neðan, laufleggur langur og með væng. Karfa með geislablóm, reifar bjöllulaga, allt að 5 sm í þvermál, ytri reifablöð breið, stundum laufótt, innri mjó, langydd. Geislablóm allt að 5 sm. Aldin um 5 mm, hárlaus.
Uppruni
V Himalaja.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum.
Reynsla
Harðgerð og lík Hlíðasunnu en enn fallegri, báðar koma frekar seint upp á vorin, einkum Fjallasunnan.